Hjallastefnan

Lokið er við smíði skóla Hjallastefnunnar í Öskjuhlíðinni. Óskum við þeim innilega til haminjgu með nýja skólann.


Fréttin hér að neðan er tekin af heimasíðu Hjallastefnunnar

 

Flutningurinn á nýju skólahúsi Hjallastefnunnar frá Selfossi til Reykjavíkur hefur vakið verðskuldaða athygli enda sérstök framkvæmd – sérstaklega á krepputímum þegar lítið er um framkvæmdir í byggingariðnaði. Það eru SG-hús sem byggja húsið á algerum mettíma og hafa staðið farsællega að allri framkvæmdinni en síðustu hlutar hússins voru hífðir á grunninn á föstudaginn 21.ágúst. Hjallastefnufólk er dauðspennt að fá húsið afhent en það er alls um 600 fermetrar og mun bæði hýsa Barnaskólann í Reykjavík og leikskólann Öskju. Fréttamenn RÚV fylgdust með flutningum á fyrri hluta hússins og ræddu við SG-fólk en þá umfjöllun má sjá með því að smella á slóðina hér að neðan.

 

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4467332/2009/08/20/10/




Til baka