Húsin
S.G. Hús hf., framleiðir íbúðarhús í nánast öllum stærðum og gerðum. Meginhluti framleiðslunnar er smíði íbúðarhúsa á einni hæð, en einnig er hægt að fá tveggja hæða hús. Þú getur einnig fengið parhús eða raðhús úr timbri.
Í teikningabókinni okkar gefum við upp nokkra valmöguleika, en einfalt er að breyta uppröðun húsanna eftir óskum viðskiptavinarins.
Við bjóðum upp á valmöguleika á gluggum og hurðum. Þú getur valið hús með hefðbundnu þaki eða valmaþaki. Klæðning hússins getur verið lóðrétt eða lárétt timburklæðning. Einnig er boðið upp á plötuklæðningar s.s steni, bárustál eða álklæðningar ásamt múrsteinsklæðningu og Nova-Brik.




