7.png

Fjölnotahús

fjolnotahus.gifSG hefur í gegnum árin byggt mikið af færanlegum kennslustofum, leikskólum, skrifstofum, fjölnotahústeikningar og svo framvegis. Við höfum kosið að kalla þessi hús fjölnotahús.

Húsin eru af öllum stærðum og gerðum. Flestar kennslustofurnar eru 6,30 x 12,30 eða um 77,5 m2. Þar er gert ráð fyrir salerni, ræstiaðstöðu, anddyri og tæplega 60 m2 kennslurými. Húsin eru afhent fullbúin að utan og innan. 

Húsin eru vel einangruð, gipsklædd að innan og með sérstökum hljóðdempandi plötum í lofti. Linoleum dúkur á gólfum. Lokið er við að legga raflagnir, sem og vatns- og hitalagnir. Dæmi um staði er nota kennslustofur frá SG Húsum. Árborg, Garðabær, Reykjavíkurborg og Reykjanesbær. 
Við höfum byggt leikskóla víðar og má þar nefna Leikskólann Reynisholt við Gvendargeisla 13 Reykjavík,leikskólann Klettaborg í Borganesi, leikskólann í Búðardal og nýjasta skólinn fyrir Hjallastefnuna í Öskjuhlíð. Einnig eigum við teikningu af fjögurra deilda skóla um 650m2.