1.png

Sumarhús

sumarhus.gifS.G. Hús gefa út sumarhúsabækling, sem inniheldur teikningar og myndir af nokkrum húsum og húsgerðum. Sumarhúsin eru byggð á sama hátt og íbúðarhús, þau eru því heilsárshús með lítinn kyndingarkostnað. 

Hægt er að fá húsin með eða án svefnlofts. Húsin eru afgreidd á mismunandi byggingarstigum, eftir óskum hvers og eins. 

Á síðari árum hefur færst í vöxt sala á húshlutum. Þannig gefst kaupanda kostur á að setja húsin saman, eftir teikningum og aðstoð frá okkur.