S.G Hús hafa tekið í notkun tölvustýrða sög fyrir þaksperrur og veggeiningar.
En með söginni sparast mikill tími auk þess sem hönnun á bæði þaksperrum sem og veggeiningum
tekur skemmri tíma.
Eftir að arkitektateikningar liggja fyrir og þakform hefur verið ákveðið,
er forritið RoofCon notað til að reikna út hagkvæmustu þversnið og gerð þaksperra.
Að lokinni hönnun kemur teikning af þaklpani og öllum þaksperrum fyrir byggingarfulltrúa.

Samansetning er með gaddaplötum sem er þrýst inn í viðinn með 27 tonna pressu í einni aðgerð.
Öll samsetning verður einfaldari, öruggari og umfram allt fljótlegri.

Tölvubúnaðurinn sem stýrir söginni er stjórnað að frafískum snertiskjá sem gerir
stjórnanda sagarinnar kleift að sjá endanlegt útlit viðarins sem saga skal á skjá, áður en sögun hefst.
Með þessu móti má draga úr mistökum við framleiðslu. Tölvubúnaðurinn er með innbyggt val á
allt að 22 gerðum af þaksperrum, ásamt sperrukjálkum fyrir valmaþök auk skærasperra.


Hér getur þú séð sperrubæklinginn okkar