Saga

Hlutafélagið SG Hús hf var stofnað 20.desember 1996 en starfsemi fyrirtækisins má rekja aftur til ársins 1959 er Sigurður Guðmundsson stofnaði trésmíðaverkstæði í 40m2 bílskúr og var þar með starfsemina til ársins 1966 þá flutti hann verkstæðið að Eyrarvegi 37 og hóf að byggja timburhús á verkstæði og flytja á byggingastað. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt síðastliðin ár. Á vordögum 2003 flutti SG Hús í stórt og glæsilegt húsnæði að Austurvegi 69. Það eru um 1400 m2 iðnaðarhúsnæði ásamt 11.500 m2 útisvæði og er öll aðstaða þar til fyrirmyndar bæði á vinnusvæði og aðstaða fyrir starfsmenn . Mikil endurnýjun hefur átt sér stað hvað varðar vélakost verksmiðjunnar og framfarir orðið í trésmíðavélum þar sem talvan er óðum að ryðja sér til rúms en það styttir allann stillitíma vélanna verulega.

Eigendur fyrirtækisins eru í dag stjórnendur og hluti starfsmanna.Stjórnarformaður er Sigurður Kjartansson byggingarfræðingur. Framkvæmdastjóri, bygginga og gæðastjóri er Kári Helgason byggingameistari en hann lærði trésmíði hjá Sigurði Guðmundssyni. Framleiðslustjóri á verkstæði er Bergur Guðmundsson. Byggingastjóri er Sævar Sverrisson. Tveir starfsmenn eru á skrifstofu og að jafnaði 35 - 40 starfsmenn á launaskrá. Að auki hafa ýmsir verktakar talsverða vinnu í kringum SG Hús hf t.d.jarðverktakar, pípulagningamenn, málarar, rafvirkjar, flutningsaðilar og hönnuðir.