1. Byggingarstig.Byggingahlutar og efni afhendist án uppsetningar.
Innifalið eru allar arkitektateikningar og burðaþolsteikningar. Samsettar veggeiningar byggðar úr timburgrind 45x145mm. Utan á grindina kemur 9mm krossviður til stífingar og sem vindvörn. Timburgluggar og hurðir með gleri og lokunarbúnaði eru komnar í veggeiningar. Einingarnar eru klæddar að utan með lóðréttri 22mm timburklæðningu. Sperrur eru samsettar kraftsperrur. Timburklæðning á þak, þéttklæðning á þak, þakpappi, alusink þakstál, festingar, rennur, vindskeiðar og klæðning undir þakskegg. Einangrun 200mm í loft og 150 mm í útveggi, rakavarnarlag, timburgrind í loft og á útveggi.
Það er val viðskiptavinar hvort hann kaupir heildaruppsetningu á húsinu eða óskar eftir aðstoð við einhverja verkþætti á byggingartímanum.T.d uppsetningu burðarvirkis.
2. Byggingarstig. Við byggingarstig 1 bætist, hvítar nótaðar loftaplötur. 12mm nótaðar spónaplötur á útveggjum. Milliveggir einangraðir og klæddir með 12mm veggjaplötum. Bílskúr klæddur með 13mm gifsplötum.
3. Byggingarstig. Við byggingarstig 1 og 2 bætist, spónlagðar eikar innréttingar, innihurðar, eldhúsinnrétting, fataskápar í herbergi, fatahengi í forstofu og plastlagðir sólbekkir í glugga.
Valmöguleikar. Hægt að fá tilboð í hönnun og smíði sökkla og botnplötu. Hönnun lagna. Gerum einnig kostnaðaráætlun eða tilboð í ýmsa verkþætti t.d raflagnir, pípulagnir og þ.h. Einnig er hægt að fá tilboð í annað sem ekki er innifalið í skilgreindum byggingarstigum.
Mynd - er væntanleg
Teikningar - smelltu hér